Sverige
25.09.2006 09:01:30 / unnadan

Búið að opna hina síðuna

www.123.is/unna var ekki lengi lokuð, sem betur fer. Ég verð vonandi dugleg að setja inn myndir þar. Love you all Unna

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 12:01:02 / unnadan

Hitt bloggið

Hin síðan mín er lokuð:klikk::klikk::klikk:

Samt er ég búin að borga. Var að senda þeim meil svo vonandi opna þeir síðuna á mánudaginn.8|

Héðan er allt gott að frétta, kvefið orðið betra og skapið líka. Fer meira að segja í ammæli í kvöld.8)

Hérna er sól og blíða og rosa flottir haustlitir. Reyndar það eina jákvæða með haustið. Ég vil hafa bara vor og sumar.:haha::haha:

Halldóra mín, nenniru að hjálpa mér með sandinn sem kom í gær. Þú ert svo helv... góð með hjólbörurnar;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 19:26:12 / unnadan

Jæja

Héðan er allt gott að frétta.

Reyndar hef ég verið drullu-kvefuð og er búin að fá sýklalyf. Ég verð ansi pirruð af lyfjunum og kvefinu og svo virkar spacebar takkinn ekki almennilega. Þyrfti að fá tölvulyf. Fattaði núna að ef ég ýti fast, þá virkar takkinn betur.

Svo þið skuluð ekki búast við löngu bloggi. Það er ekkert gott að verða blá og marin á fingurgómunum.

Hérna hefur verið mjög fallegt haustveður síðustu daga. Laufin falla í flygsum af Hlyninum stóra. Ég var að velta því fyrir mér að reyna að safna þeim saman, enákvað að það væri allt of mikil vinna og ekki má ég valda henni Birtu nágranna mínum vonbrigðum. Hún er svo hrifin af því að fá laufin yfir í garðinn sinn. (Eða hitt þó heldur)

Love you all

Unna


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 18:30:11 / unnadan

Myndir

www.123.is/unna


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 23:11:06 / unnadan

Farin í frðalag

Bara örstutt. Er farin í smá ferðalag með Mörtu.

Skrifa þegar ég kem heim

Love u all

Unna


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 20:41:07 / unnadan

Skólinn er að byrja

Jæja þá er komið að því aðkrakkarnir byrji í skólanum ÖLL FJÖGUR!!!!!!!! Dana er að byrja að lesa sjúkraliðann. Það tekur hana tvö ár og verður rosa veisla hérna hjá mér að þeim loknum. Á altaninu sem ekki er búið að gera (haha). Mér líst rosalega vel á þetta hjá henni. T1 og T2 verða á leikskólanum og Seb á skóladagheimili. David Andri byrjar að hluta aftur á fyrsta ári,þ.e.a.s. Media en grunnefnin les hann á öðru ári Alex fer í 9 bekk (10á Íslandi) og Aron fer í 8 bekk. Ég er ennþá að berjast við þennan bölv.... augnsjúkdóm sem kom eftir vesenið með skjaldkyrtilinn. Það er búið að gefa út .á yfirlýsingu að þetta taki að minstakosti eitt ár í viðbót. Gaman eða hitt þó heldur. Svona er lífið Jonni er á fullu við að gera klárt fyrir kjallaratröppurnar. Steypa og svo verður byrjað að hlaða vegginn. Hann er líka búinn að steypa fasta festinguna fyrir garðljósið, sem verður vestan við húsið hennar Mömmu Venjan er aðveðrið verði betra þegar skólinn byrjar og má það alvegt gerast núna. Það hefur rignt í þrjá daga og er það alveg mátulegt finnst mér. Ég keyptimér 320GB flakkara og er á fullu að taka bækur heim frá sjóræningjanum, og svo er ég að prófa að taka heim mynd. Ég valdi myndina BigMamas house 2. Vonandi gengur þetta. Ég var að hjálpa Jonna að fá sér hotmail. Endilega sendið honum póst á johnny-goyette@hotmail.com Love u all and have a gr8 day Unna

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 20:02:01 / unnadan

Vidgerd

Loksins er talvan mín farin í vidgerd. Áaetladur vidgerdartími er 3 til 4 vikur. Ég er ad blogga á tölvunni hans Alex. Man bara ekki hvernig madur setur inn íslenskuna. Svo tetta verdur stutt núna.

 

Mamma og Halldóra voru hér í mánud og var vedrid frábaert allan tímann. Halldóra er alveg yndislegur unglingur. Ég sakna hennar mikid. Ég vona ad hún komi aftur naesta sumar.

 

Gaui, Inga, Sunna Dís, Ísak og Arna Diljá voru hér í níu daga. Tad var alltof stuttur tími. Hefdi sko viljad hafa tau í mánud. Tá hefdi Gaui getad spilad meira golf og vid Inga getad spjallad á medan.

 

Vid fórum í dýragardinn og vedrid var alveg frábaert.

Gaui og Dana fóru med stóru krakkana í tívoli en vid Inga vorum med litlu stelpurnar heima á medan. Skelltum okkur á leikvöll med Örnu Diljá og Töru. Teim samdi ótrúlega vel fraenkunum. Taer eru alveg ótrúlegar prinsessur.

 

Vid skelltum okkur í kúrekabaeinn og tad rigndi tann dag. Mesta demban kom á medan vid vorum í skakka húsinu. Tad var ferlega fyndid ad sjá vatnid renna uppäimäoti. Ótrúlegt hvad tad er haegt ad blekkja heilann med sýnvillum.

 

 Love you all

Unna


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 08:22:19 / unnadan

Sætust

Image hosting by TinyPic

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 17:51:19 / unnadan

Biluð,tölvu-drusla

Tölvudruslan,mín,er,biluð Millibilstakkin-virkar-ekki. Það-gerir-að-ég-nenni-ekki-að-blogga.Þarf-að-fara-með-drusluna-í-viðgerð.Veit-ekki-hvenær-ég-geri-það. Love-you-all Unna

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 19:56:47 / unnadan

Síðan skein sól allavega í viku

Nú er ég búin að sjá veðurspána og það á að vera tuttugu stiga hiti í sex daga og svo verður tuttuguogfimm stig.

Það getur bara ekki verið betra. Mamma og Halldóra koma á sunnudaginn. Rosalega skulum við hafa það gott. Liggja í sólbaði (Halldóra), vinna í garðinum (ég) og prjóna (Mamma).

Love you all

Unna


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 18:38:56 / unnadan

Sól, sól skín á mig

Sólin hefur sko sannarlega verið hérna í Sverige. Það er búið að vera gjeggjað veður í meira en hálfan mánuð. Bara komið ein lítil skúr. Konan er náttúrlega alltaf úti og er orðin þokkalega brún. Sérstaklega á bakinu.

Á mánudaginn var fór ég til Gautaborgar, til læknis. Það kom í ljós að þessi lyf eru að virka, allavega samkvæmt blóðprufunni. Ég finn nú ekki mikinn mun sjálf, enda búin að vera ansi lengi slæm í augunum. Augun eru allt of stór. (Af hverju eru augun í þér svon stór amma mín, sagði Rauðhetta)

 

Á þriðjudaginn var bara ekkert að gerast, svo ég var úti að potast í garðinum.

 

Á miðvikudaginn var farið í Borás með Alex til læknis. Athyglisbresturinn er ennþá að hrjá hann en mikið hefur breyst síðan í Nóvmeber þegar hann byrjaði á lyfjum.

 

Fimmtudagurinn fór í útiveru og fund í skólanum hjá David. Þar var ákveðið að hann myndi skifta um braut og fer á á MP1 í haust. Hann þarf að lesa Media efnin á fyrsta ári en hin á öðru ári.

 

Áföstudaginn fórum við Jonni til Gautaborgar (aftur) á fund með BNK og skólanum um hvernig skólinn ætlar að styðja við hann næsta vetur. Hann hefur ekki fengið nægan stuðning. Aron er ansi  mikið á einhverfu rófinu (sama róf og litróf. ojojojoj hvað ég kann mikið) Hann þarf öðruvísi kennslu til að geta lært. Það þýðir ekkert að ætlast til að hann beri ábyrgð á eigin námi og að hann geti planerað námið. Ég á nú erfitt með að trúa að skólinn standi sig. Skólastjórinn var reyndar með á fundinum og er það í fyrsta skifti sem hann mætir á skólafund. Oftast hefur sérkennarinn verið með og á það við um alla drengina.

 

Í dag laugardag er ég bara búin að vera úti og mála skúrinn sem Jonni byggði við bílskúrinn. Auðvitað snéri ég baki í sólina, svo ég hef fengið meiri lit á bakið. Ég ætla alltaf að liggja í sólbaði og hef lagst í hengirúmið mörgum sinnum, en ég nenni ekki að liggja þarna og gera EKKERT.

 

Nú styttist óðfluga í það að mamma og Halldóra komi. Ég er sko farin að hlakka til.

 

Jæja held að ég láti þetta nægja í bili:klikk:

 

Love you all

Unna


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 09:57:02 / unnadan

Hér er ég, fyrr og nú

[x] reykt sígarettu (Ætla að halda því áfram)
[ ] klesst bíl vinar/vinkonu
[ ] stolið bíl (foreldranna)
[x] verið ástfangin/n (Er enn)
[ ] verið sagt upp af kærasta/kærustu
[ ] verið rekin/n
[x] lent í slagsmálum (Við Negra)
[x] læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum (Hmmmmmmm)
[x] haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki (No komment) 
[ ] verið handtekin/n
[ ] farið á blint stefnumót
[x] logið að vini/vinkonu (það er orðið langt síðan)
[x] skrópað í skólanum (Ekki gott)
[ ] horft á einhvern deyja
[ ] farið til Canada
[ ] farið til Mexico
[x] ferðast í flugvél (Það er fljótlegastra leiðin milli Íslands og Sverige)
[ ] kveikt í þér viljandi
[ ] borðað sushi
[ ] farið á sjóskíði
[x] farið á skíði (sem sagt í snjó) (Og er ekkert hrifin af vþí)
[ ] hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
[x] farið á tónleika (Með Bubba Mortens og fleiri)
[x] tekið verkjalyf (Það kemur fyrir)
[x] elskað einhvern eða saknar einhvers akkurat núna (Elska manninn minn, börnin mín 4, barnabörnin 3, tengdasoninn, mömmu, bræður mína, mákonur , bræðrabörnin og fleiri)
[x] legið á bakinu úti og horft á skýin (Meira að segja í fyrrasumar)
[x] búið til snjóengil (Á örugglega eftir að gera það aftur og aftur)
[x] haldið kaffiboð (Fleiri en eitt)
[ ] flogið flugdreka
[x] byggt sandkastala (1998)
[x] hoppað í pollum (Skemmti mér vel)
[x] farið í "tískuleik" (dress up) (Á djammárunum)
[x] hoppað í laufblaðahrúgu (Fékk skammir)
[x] rennt þér á sleða (Líka snjóþotu )
[x] svindlað í leik (Sem krakki var ég ferlega tapsár)
[x] verið einmana (1979)
[ ] sofnað í vinnunni/skólanum
[x] notað falsað skilríki (Já og það klikkaði, mannstu Sigrún)
[x] horft á sólarlagið (Úllala)
[x] fundið jarðskjálfta (Marga)
[x] sofið undir berum himni (No komment)
[x] verið kitluð/kitlaður (Jonni stundar það)
[ ] verið rænd/rændur
[x] verið misskilin/n (Ótrúlega oft)
[x] klappað hreindýri/geit/kengúru  (uppstoppað hreidýr, reiknast það)
[ ] farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
[ ] verið rekin/n eða vísað úr skóla
[x] lent í bílslysi (Það réðist á mig brjálaður flutningabíll)

[ ] verið með spangir/góm
[ ] liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
[x] borðað líter af ís á einu kvöldi (Oft)
[x] fengið deja vu (No komment, of prívat)
[ ] dansað í tunglskininu
[x] fundist þú líta vel út (Alltaf)
[x] verið vitni að glæp (Horfði á Júgóslava berja konu, það kalla ég glæp)
[ ] efast um að hjartað segði þér rétt til
[ ] verið gagntekin/n af post-it miðum
[x] leikið þér berfætt/ur í drullunni (Þegar Dana var lítil)
[x] verið týnd/ur (Heimir frændi og rútur)
[x] synt í sjónum (Lét plata mig í þá vitleysu)
[x] fundist þú vera að deyja (No komment, of privat)
[x] grátið þig í svefn (Örugglega í frekjukasti sem barn)
[x] farið í löggu og bófa (Það voru kúrekar og indjánar í denn)
[x] litað nýlega með vaxlitum (Á3 barnabörn svo það er sjálfgefið)
[ ] sungið í karaókí
[ ] borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala um krónur, fimmkalla og tíkalla hérna)
[x] gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki (Hver hefur ekki gert það)
[x] hringt símahrekk (Það er svo ferlega langt síðan að það reiknast  varla)
[x] hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér (Þegar ég var með unglingaveikina)
[x] stungið út tungunni til að ná snjókorni (Sem barn)
[ ] dansað í rigningunni
[ ] skrifað bréf til jólasveinsins
[ ] verið kysst/ur undir mistilteini
[x] horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um (Fyrir löngu síðan)
[x] blásið sápukúlur (í maí)
[x] kveikt bál á ströndinni (1995)
[ ] komið óboðin/n í partý
[ ] verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
[x] farið á rúlluskauta/línuskauta (Já en ekki nýlega)
[x] hefur einhver óska þinna ræst (Já margar)
[ ] farið í fallhlífastökk
[x] hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig (Gæsapartý)
[ xx] pissað úti (meira að segja í síðustu viku)

Love you all

Unna


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 21:04:44 / unnadan

Rigning

Þetta blessaða sumar er ekkert að standa sig.Hér eru skúrir á hverjum degi.:evil: Þeir segja að það c gott fyrir gróðurinn. Ok þá er að sætta sig við það. Reyndar verð ég að viðurkenna að það er líklega rétt. Allavega eru fræin sem ég sáði í maí komin upp. Ég sáði Majus fyrir mömmu til að hafa í hengipottunum við litla húsið hennar. Vonandi blómstra þeir á meðan hún er gérna. Svo sáði ég fullt af gulri Lúpínu. Ég hef ekki séð þann lit áður, það verður spennandi að fylgjast með þeim. :haha:

Svo hefur fjölskyldan okkar stækkað aðeins. 120 litlir einstaklingar bæst við. Þetta eru litlit Guppy fiskar og verður gaman að sjá litina á þeim, þegar þeir verða stórir. Égvar svo óheppin að það kom bakteríusýking í búrið og drápust þrjár kellingar og einn kall af þessu. Ég keypti lyf í dag og vonandi hjálpar það.;)

Jæja nenni ekki að skrifa meira núna.

Love you all

Unna


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 19:28:19 / unnadan

Trén Fallin

Jyppy.

Trén eru fallin. Það tók tvo menn og einn traktóir 15 mínútur. Hah 15 mínútur og Jonni er búinn að vera að draga þetta endalaust. Að vísu eigum við eftir að fá reikninginn en það er best að borga og brosa. Þetta verður varla svo dyrt. Þeir sögðust taka 260 á tímann plús vaskinn. Kannski verður þetta 1500 kall og ég held bara að ég geti hlegið lengi fyrir þá upphæð.

Reyndar er mesta vinnan eftir. Það þarf að saga þetta í 50cm lengdir og kljúfa svo í mátulegar þykktir svo þetta passi vel í hitapönnuna. Nú kemur sér vel að eiga þrjá unglingsstráka. Er nokkuð bannað að stunda barnaþrælkun. Ég verð bara að vona að það komist ekki upp um mig. Nei án gamans verða strákarnir að hjálpa til. Ég hef svo mikið annað að gera.

Í dag sagði ég "óvini múmer eitt" stríð á hendur, eða kannski rætur. Ég hef ákveðið að útrýma böööövuðum fíflunum úr grasinu hjá mér. Þetta eru fallegustu grey þegar ég sé þá á mynd. Ég vil ekki hafa fífla í túninu mínu. Konan (Ég) skellti sér í vinnuhanska í dag og tók fram KÚBEINIÐ og svo var það látið vaða ofaní grassvörðinn og dregnir upp fíflar með rótum (flestir).  Ég var að í marga klukkutíma og fyllti heilar hjólbörur. Svo ætla ég að halda áfram á morgun. Ekki veitir af. Ég þarf nefnilega að flýta mér að þessu af því að ég á ennþá eftir að panta sandinn sem fer undit hellurnar sem ég ætla að vera búin að leggja áður en Mamma og Halldóra frænka koma.

Greinilega rosa mikið að gera. Ég reyndi að setja inn mynd af trjánum en það tókst ekki, ég hef ekki hugmynd um hvernig maður fer að því. Vonandi getur einhver kenntg mér það...

Love you all

Unna


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 17:16:58 / unnadan

Stóra tréð

Jibby, ég er búin að fá leyfi til að fá menn til að fella niður stóra tréð og er að reyna að setja mynd af því hérna inná. Veit ekki hvort það tekst


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2